Back by popular demand?
Ég hef verið að velta fyrir mér möguleikanum að byrja að blogga aftur. Það er oft ágætis útrás fyrir tjáningarþörf mína og mér finnst sjálfri gaman að lesa blogg hjá öðrum, sjá hvað er að gerast hjá þeim.
Annars er ég að hugsa um að segja endanlega skilið við moggabloggið, ég saknaði alltaf blogspot bloggsins míns, hérna hef ég bloggað síðan ég var bara busi í Kvennó, pælið í því. Ég sagði skilið við blogspot vegna tæknilegra örðugleika en þar sem þeir eru ekki til staðar lengur ætla ég bara að byrja hér aftur. Ég vil ekki halda áfram á Keele blogginu, ég ætla bara að halda því svona eins og það er :) Einskonar ferðasaga á netinu.
Eina sem ég hef áhyggjur af er að það séu allir hættir að tjekka á bloggunum mínum, svo það eigi enginn eftir að vita af því að ég sé að blogga. Þannig að ef þú ert að lesa, vinsamlegast réttupphönd í kommentakerfið!
Kær kveðja,
Anna Margrét